20.2.2009 | 09:54
Við megum ekki við fleirum neikvæðum umælum í erlendum fjölmiðlum
Hér er Gylfi líklega að ræða um ákvarðanir sem heimila hvalveiðar við Ísland. Þetta er veikur punktur hjá mörgum erlendum aðilum sem ekki þekkja hefðir þeirra þjóða sem stunda hvalveiðar en engu að síður verður eindregið að varast það að ekki ofbjóða nánum erlendum samstarfsaðilum og viðskiptavinum Íslands. Það er einfaldlega of mikið í húfi fyrir þjóðina. Við megum ekki við fleirum neikvæðum umælum í erlendum fjölmiðlum við erum hreinlega búin að fylla þann kvóta upp í stút.
Hér má þá taka saman þá frægustu: -Bankahrun með Icesave skandall- Davíð Oddsson við borgum ekki - Ásett hryðjuverkalög- Baugsmál- Geir Haarde BBC viðtal og fleiri niðurlægjandi dæmi um trúðahátt á virðulegu þingi. Til að setja topp fyllinguna á kökuna ætla íslendingar að slátra öllu lifandi í kringum eyjuna sem þeir eru búsettir á.
Og þá er það spurning dagsins? Myndi Þú kæri landsmaður vilja hafa viðskipti við svona fólk? Eða hvað þá treysta þeim fyrir peningum
Gylfi óttast að án erlends fjármagns verði ekkert afgangs til að byggja hér upp atvinnulíf og segir líka að: Það bæti ekki úr skák að samningamenn erlendra lánadrottna kvarti undan hroka íslenskra embættismanna. Það gæti varla verið sami hrokinn sem landsmenn hafa lifað við og bláa höndin og stráka klúbburinn góðir sem eru að verki eða?. En Steingrímur Sigfússon veit nú örugglega hvert hann á að senda reikninginn fyrir þessum gjörðum í framtíðinni.
Gylfi Zoëga: Svartar horfur á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Guðmundur Örn Harðarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Mitt Norska blog
- Hagsmunasamtök heimilanna
- Nýtt Lýðveldi
- Ræða Vilmundar Gylfasonar um nýa stjórnaskrá
- Draumabústaður Frábærir norskir bústaðir
- Birkiland Íslensk hönnun í sérflokki flott vöru úrval fyrir vini í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.